9.3.2009 | 17:00
Við hverju bjóst maðurinn?
Ég skil ekki af hverju þetta er yfirhöfuð frétt, að Bjarna þyki lánasafn bankanna lélegt. Það liggur fyrir að bankarnir offjárfestu í lánveitingum, bæði til fyrirtækja og einstaklinga og lán standa á mörgum stöðum langt umfram eignir. Þess vegna er heldur ekki hægt að "endurnýta" afskriftirnar á kaupum viðskiptabankanna eins og Framsókn hefur mælt með.
Hversu mikið ætli t.d. N1, viðskiptablokkin hans Bjarna sem hann yfirgaf í lok síðasta árs, skuldi viðskiptabönkunum?
Lánasafn nýju bankanna afar lélegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heyrði að N1 skuldi um 20 milljarða.
Bjarni Geir Gunnarsson (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 17:08
Þessir glansgæjar eru ekki í sambandi við sitt umhverfi...koma eins og jólasveinar af fjöllum....þvílýkur horror sem þetta einkavæðingar útráasar pakk er búið að setja þessa þjóð í!!!! Svo stendur ekki á svörum...um hvað gera skuli? Þvílíkt hvað fólk getur verið heimskt!! Ættlast svo Framsókn og Sjálfstæðisflokku...Samfylking til að einhver hafi áhuga á að kjósa þessa aula aftur? Ekki ég sko takk fyrir!!!!!
Geiri Mar (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 21:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.