Klukkuð

Maja[1] frænka klukkaði mig í miðjum búferlaflutningum þannig að ég góðfúslega tók ekki eftir því. En það er víst ekki hægt að dyljast endalaust, þannig að nú tek ég þátt í leiknum - þegar hann er löngu orðinn kaldur án þess að vera kúl.

  1. Ég slít alltaf keðjur sem mér eru sendar. Les alltaf brandara en sendi sjaldnast frá mér. Rökfræðilega hefði ég þess vegna ekki átt að taka þátt í þessu klukki.
  2. Ég Heartpóstsíur. Ég hef fengið að lágmarki 300 tölvupósta á dag í bráðum 10 ár og hefði ekki lifað það af án þeirra. Merkilegt þó að átta sig á að í upphafi var 1% móttekinna bréfa rusl - í dag er 1% móttekinna bréfa ekki rusl.
  3. Ég hef búið í 2 húsum hartnær 90% af ævi minni. Síðustu 10% í 4 húsum (eða var það 5, best að spyrja mömmu næst þegar ég hitti hana).
  4. Í kjölfar þess að kaldhæðni mín og húmor að öðru leyti fór öfugt í gegnum tölvubréfið hjá einhverjum viðmælandanum fyrir einhverjum árum síðan, tók ég unglingslegu ástfóstri við broskalla - hverja ég misnota við hvert tækifæri núorðið :).
  5. Ég á óskaplega erfitt með að tjá mig eftir pöntunum (sérstaklega svona klukk-pöntunum) - en ligg sjaldnast á skoðun minni þess á milli.
  6. Ég er flutt aftur til Íslands (Ég flutti til Noregs í eitt ár, fyrir ykkur sem vissuð það ekki :))
  7. Ég er forfallinn spilasjúklingur - í jákvæðustu merkingu þess orðs. Ég spila aldrei uppá peninga en þú gætir næstum því lagt fyrir mig hvaða borðspil sem er og ég hætti ekki fyrr en ég kann það - og vinn það! Ef þú átt t.d. Íslenska efnahagsspilið eða gamla Rallý spilið, eða jafnvel eldri útgáfuna af Partíspilinu ... Ekki spurning, ég er game. Kynntist m.a. nýju borðspili úti sem er frábært líka - verst að ég man ekki nafnið á því.
  8. Ég er gleymin! Ég sem mundi allt, þuldi allt or skannaði svo hratt að ég vissi allt, heilinn er greinilega að eldast og þreytast, því ekkert af þessu virkar lengur - svo neinu nemi.

Ég ætla ekki að klukka neinn, enda leikurinn sjálfdauður og allir búnir með skammtinn sinn hvort sem er.

 

[1] Maja/Mæja ... ég get aldrei ákveðið mig hvernig þetta á að skrifast - alveg eins og í gamla daga, þrátt fyrir að ég kynni j/i regluna uppá hár - þá vildi ég samt alltaf skrifa Gauji - af því mér fannst það flottara (shrug).  

 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Heyrðu vinkona,

þú komin til landsins en varst ekki í Keflavík í gær!!! Frábær mýrarbolti sem þar var leikinn.

kv. Ingó

Ingibjörg Hinriksdóttir, 10.8.2007 kl. 08:57

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

maja heiti ég, það má líka skrifa maya af sumum, en ekki mæa. Amma mín og nafna skrifaði Marja sem mér finnst líka svolítið flott.

Velkomin heim, ljúfa.

María Kristjánsdóttir, 10.8.2007 kl. 10:09

3 Smámynd: Elfur Logadóttir

Já Ingibjörg, það var erfið ákvörðun að vera heima í gær. Mér tókst hins vegar af íslenskum sið að næla mér í kvef dauðans[1] strax fyrsta daginn minn í nýjum heimkynnum og gat þess vegna með engu móti réttlætt möguleikann á að verða veik ennþá lengur - á kostnað ritgerðar sem ég á að skila eftir alltof fáa daga. En ég mæti á sunnudag, ekki spurning.

Takk Maja :) 

[1] ekki bara broskallarnir - ég pikka upp lingóið líka (mörgum árum síðar). 

Elfur Logadóttir, 10.8.2007 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband